Hrísateigur 29, Reykjavík

Heiti: Skuld
Byggingarár: 1929
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Eyvindur Eyvindsson og Kristín Bjarnadóttir
Aðrir eigendur:
1944: Sveinbjörn H. Pálsson
Flutt:

1944 að Hrísateig 29, Reykjavík

Hvernig flutt: Í heilu lagi

Saga:

Teigahverfi í Reykjavík byggðist að miklu leyti upp á árunum 1943-1947 af húsum sem flutt voru úr Skerjafirði þegar hernámslið Breta byggði þar herflugvöll í seinni heims­styrjöldinni. Í húsakönnun sem gerð var í hverfinu árið 2009 segir þetta um húsið númer 29 við Hrísateig:

Sveinbjörn H. Pálsson [1910-1993] fékk í júní 1944 leyfi til að endurbyggja húsið Shellveg 10 á þessari lóð við Hrísateig. Húsið, sem kallað var Skuld, var fyrst brunavirt árið 1932, en þess er fyrst getið í manntali árið 1929 og var þá í eigu Eyvindar Eyvindssonar [1895-1954]. Þetta var einlyft hús með risi og kjallara, byggt úr bindingi og klætt með bárujárni á veggjum og þaki. Við norðurhlið þess var timburviðbygging með skáþaki. Þegar húsið var flutt að Hrísateigi var það sett á nýjan og hærri steinsteyptan kjallara (sjá teikningu t.v.). Það virðist hafa verið flutt ásamt með viðbyggingunni sem stóð við norðurhlið þess. Í maí 1945 fékk Sveinbjörn leyfi til að lengja húsið til norðurs með steinsteyptri viðbyggingu og var bygging hennar langt komin í október sama ár. Hluti hennar myndar útskot á bakhlið hússins. Um leið var þak hússins hækkað og byggt á það ris sem nær yfir bæði eldri hlutann og viðbygginguna. Einnig virðist húsið þá allt hafa verið múrhúðað að utan. Húsið var ekki brunavirt á lóð sinni við Hrísateig 29 fyrr en í september 1957. Þá var einnig virtur steinsteyptur bílskúr á lóðinni, sem byggður hafði verið árið 1953, eftir teikningu arkitektanna Ásmundar Ólasonar og Sigurðar Pjeturssonar. Skúr þessi var notaður sem vélaverkstæði. Hann stendur enn (2009) í norðvesturhorni lóðarinnar, áfastur við norðvesturhorn hússins. Árið 1957 var einnig samþykkt séríbúð í kjallara. Um tíma stóð geymsluskúr á lóðinni áfastur við bílskúrinn og útbygginguna við bakhlið hússins. Hann hafði verið reistur í óleyfi og var notaður undir atvinnustarfsemi. Árið 1968 var eiganda gert að fjarlægja skúrinn. Hann stendur ekki á lóðinni nú (2009).1Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2009). Húsakönnun. Laugarnesvegur – Sundlaugavegur – Laugalækur – Hrísateigur – Otrateigur, bls. 49. Reykjavík: Minjasaafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 150.

Ekki er ósennilegt að húsið hafi þurft að víkja vegna framkvæmda við flugvöllinn.

Eyvindur lauk klæðskeranámi ungur að árum og starfaði síðan við þá iðn í 12 ár. Þá gerðist hann bílstjóri hjá BSR og síðar Olíufélaginu Shell. Eftir tæplega tveggja áratuga starf við bifreiðaakstur sneri hann sér aftur að klæðskeraiðninni. Árið 1930 kvæntist hann Kristínu Bjarnadóttur (1892-1980) og eignuðust þau einn son. Þau eru skráð til heimilis að Shellvegi 10 til ársins 1943.2Andrés Andrésson (1954, 30. september). Eyvindur Eyvindsson klæðskeri – minning. Morgunblaðið, 41. árg., 223. tbl., bls. 7; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1943. 5. hluti: Njálsgata – Sóleyjargjata.

Árið 1944 var Sveinbjörn H. Pálsson vélsmíðameistari skráður til heimilis að Hrísateig 29 ásamt Óskari Pálssyni (1905-1990) bróður sínum, eiginkonu Óskars, Þórunni Guðmundsdóttur (1918-2012) og tveggja ára syni þeirra hjóna.

Sveinbjörn rak vélsmiðju um árabíl. Einnig hafði hann umsjón með mörgum og flóknum húsflutningum og var brautryðjandi á þeim vettvangi. Meðal húsa sem hann sá um að flytja voru Laugavegur 13 / Efstasund 100 og Lækjargata 10 / Skipasund 88.3Sveinbjörn Hafsteinn Pálsson vélsmíðameistari – Minning (1993, 14. júlí). Morgunblaðið, 81. árg., 156. tbl., bls. 30.

 

Leitarorð: Skerjafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. september, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. september, 2026