Hinrikshús er ljósa húsið sem stendur sjávarmegin Strandgötu með tveimur gluggum á vesturstafni. Heimild: Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971), bls. 65. Sögurit Eskfirðinga I. bindi. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggða­sögu­nefnd Eskifjarðar.
Hinrikshús er ljósa húsið sem stendur sjávarmegin Strandgötu með tveimur gluggum á vesturstafni. Heimild: Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971), bls. 65. Sögurit Eskfirðinga I. bindi. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggða­sögu­nefnd Eskifjarðar.

Hinrikshús, Eskifirði

Heiti: Hinrikshús
Byggingarár: 1905
Rifið: ≈1970
Upphafleg notkun: Nótastofa
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
≈1910 ?: Hinrik Hallgrímsson og Guðný Árnadóttir
Upphafleg staðsetning:

Við sjóinn, Eskifirði

Fyrst flutt:

≈1910 ?: Að Strandgötu 44, Eskifirði

Flutt:

? að sjónum, Eskifirði

Saga:

Árið 1905 var byggt lítið timburhús á Eskifirði, sem notað var sem nótastofa, það er hús sem unnið var að gerð og viðhaldi á fiskinetum. Í skýrslu um byggingarár húsa á Eskifirði segir þetta um húsið:

Ekki verður annað skilið á þessum texta en að húsið hafi fyrst staðið við sjóinn, síðan flutt þangað sem Strandgata 44 er í dag (2026) og þá notað sem íbúðarhús. Loks var húsið aftur flutt nær sjónum nálægt sínum upphaflega stað og notað í síldarsöltun.1Kristín Ágústsdóttir (2001, maí). Byggingarár húsa á Eskifirði, bls. 13 og kort 2.4. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands. Í Eskju I má sjá mynd af húsinu sem tekin er á árunum 1910 til 1913. Þar sést húsið standa öskammt utan við Bakaríið (Strandgata 41) neðan við gatnamót Strandgötu og Kirkjustígs, þ.e. við Strandgötu 44. Í myndatexta kemur fram að húsið hafi oft verið kallað Hinrikshús eftir að Hinrik Hallgrímsson (1869-1950) átti þar heima.2Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971), bls. 65. Sögurit Eskfirðinga I. bindi. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggða­sögu­nefnd Eskifjarðar. Þegar myndin er skoðuð er vart hægt að ímynda sér að hús getið staðið nær sjónum en Hinrikshús og þeirri sem þetta skrifar hefur ekki tekist að finna hvar Hinrikshús stóð í upphafi eða þegar það var fjarlægt um 1970.

Í manntali 1910 búa hjónin Hinrik Hallgrímsson daglaunamaður og Guðný Árnadóttir (1867-1916) í Hinrikshúsi ásamt fjórum stálpuðum börnum sínum. Tíu árum síðar býr Hinrik þar ásamt tveimur börnum sínum.3Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Hinrikshús, Eskifjarðarsókn, Eskifjarðarhreppi í Suður-Múlasýslu. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 23. ágúst 2026 frá https://smb.mshl.is/kenni/s2b0dh.

 

Leitarorð: Eskifjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. ágúst, 2026

Heimildaskrá

  • 1
    Kristín Ágústsdóttir (2001, maí). Byggingarár húsa á Eskifirði, bls. 13 og kort 2.4. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands. ↩︎
  • 2
    Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971), bls. 65. Sögurit Eskfirðinga I. bindi. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggða­sögu­nefnd Eskifjarðar. ↩︎
  • 3
    Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Hinrikshús, Eskifjarðarsókn, Eskifjarðarhreppi í Suður-Múlasýslu. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 23. ágúst 2026 frá https://smb.mshl.is/kenni/s2b0dh. ↩︎

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. ágúst, 2026