Arnarhraun 2, Grindavík
≈ 1948 að Arnarhrauni 2, Grindavík
Saga:

Arnarhvoll er ofarlega til hægri á korti Ómars Smára Ármannssonar. Sótt 4. nóvember 2026 af https://ferlir.is/thorkotlustadanes-ornefna-og-soguskilti/.
Árið 1931 gengu þau Jóhanna Einarsdóttir (1907-1996) frá Reykjadal í Hrunamannahreppi og Engilbert Jónsson (1906-1981) frá Sunnuhvoli í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík í hjónaband. Allra fyrstu árin bjuggu þau hjá foreldrum Engilberts í Sunnuhvoli, en ekki leið á löngu þar til þau byggðu sér hús á Þórkötlustaðanesi í Grindavík og nefndu Arnarhvol. Húsið stóð á austanverðu nesinu, skammt norðvestan bryggjunnar sem þar var. Þaðan var þá talsverð útgerð en upp úr 1940 lagðist hún af og útgerðin fluttist yfir í Járngerðarstaðahverfi með tilkomu stærri báta sem þurftu betri hafnaraðstöðu. Þau hjón fluttu því hús sitt um 1948 að Arnarhrauni 2 í Grindavík, þar sem það stendur enn og er enn kallað Arnarhvoll.
Sagan segir að áður en Engilbert réðst í byggingu hússins á Þórkötlustaðanesi hafi hann gert sér ferð til Reykjavíkur til að skoða flutningavagn (flatvagn) og taka af honum mál. Það mál hafði hann síðan til viðmiðunar þegar hann ákvað hæð grunnsins og grunnflöt hússins. Því var eins og hann hefði gert ráð fyrir að mögulegt væri að færa húsið enda var óvisst á þessum tíma hvar hafnarmannvirki Grindavíkur yrðu byggð til framtíðar.
Þegar kom að því að flytja átti húsið var umræddur vagn sóttur. Hleypt var lofti úr dekkjum hans og honum bakkað inn undir húsið en á þeim gafli var búið að brjóta niður grunninn. Húsið var síðan losað frá grunninum, loft sett í dekkin og nú kom sér vel að grunnurinn var í réttri hæð, því húsið lyftist og sat á vagninum og ekið var af stað.
Þegar að Arnarhrauni 2 kom var sama aðferð höfð, vagninum bakkað inn í grunninn, sem var opinn á öðrum gaflinum og mátulega hár, lofti hleypt úr dekkjum og húsið sat eftir á grunninum.
Talið er að upphaflegur grunnflötur hússins hafi verið um 55 fermetrar, en síðar var það lengt til vesturs til að koma fyrir þvottahúsi og vatnsþró. Enn síðar var opnað inn í hana til að stækka baðherbergið.
Þegar húsið var sett niður í Járngerðarstaðahverfinu þótti furðulegt að finna því stað á fiskreitum langt ofan byggðar. Það leið þó ekki á löngu en fleiri hús bættust við til varð gatan Arnarhraun sem fékk nafn sitt af Arnarhvoli.
Eftir flutninginn fór Engilbert að vinna við húsbyggingar og aflaði sér réttinda sem byggingarmeistari. Hann kom sér upp trésmíðaverkstæði en hann starfaði einnig sem byggingarfulltrúi í Grindavík í 30 ár.
Engilbert bjó í húsi sínu til dánardags en síðustu æviárin var Jóhanna á hjúkrunarheimili. Húsið er ekki lengur í eigu fjölskyldunnar.1Ferlir. Þórkötlustaðanes – Örnefna- og söguskilti. Sótt 29. október 2026 af Þórkötlustaðanes – Örnefna- og söguskilti – Ferlir; Sigrún Guðmundsdóttir (1981, 16. desember). Engilbert Jónsson byggingafulltrúi. Íslendingaþættir Tímans, 47. tbl., bls. 9-10; Örn Sigurðsson (2026, 29. október). Munnleg heimild.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. nóvember, 2026
Heimildaskrá
- 1Ferlir. Þórkötlustaðanes – Örnefna- og söguskilti. Sótt 29. október 2026 af Þórkötlustaðanes – Örnefna- og söguskilti – Ferlir; Sigrún Guðmundsdóttir (1981, 16. desember). Engilbert Jónsson byggingafulltrúi. Íslendingaþættir Tímans, 47. tbl., bls. 9-10; Örn Sigurðsson (2026, 29. október). Munnleg heimild. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 4. nóvember, 2026